
Þetta var fimmti dagurinn í felutjaldi. Klukkan 6:04 vorum við komin í tjaldið eftir torfæra göngu í gegnum hraunið. Dagurinn leit ekki vel út. Það var stormviðvörun á svæðinu.
Klukkan 10:25 lenti fullorðinn haförn með flundru en birtan var ekki að vinna með okkur. Hann sat í hreiðrinu og mataði stálpaða ungana. Tuttugu mínútum síðar fer sá fullorðni og ungarnir sofna.
Vindurinn eykst og lítið gerist. Stormurinn nálgast. Við horfum á ungana sofa og geispa í nokkra klukkutíma. Veltum fyrir okkur hvort hafarnageisp sé smitandi. Um klukkan þrjú fara ungarnir að æfa vængjatök.
Upp úr klukkan fjögur er birtan orðin upp á sitt besta. Ungarnir sem voru glaðvakandi snúa sér allt í einu við og horfa til himins. Þremur sekúndum síðar var hún lent með lifandi rauðmaga í klónum. Rauðmaginn spriklaði í hreiðrinu á milli ungana sem horfðu á hann soltnum augum.
Þarna gekk allt upp. Birtan mjúk og falleg og ungarnir horfðust í augu við rauðmagann á myndinni.
Eftir fimm daga bið höfðum við einungis fengið fjögur tækifæri þar sem hver lending tekur einungis þrjár sekúndur.
Þetta er myndin.
Nokkrum dögum síðar var hún á forsíðu Morgunblaðsins.
UPPLAG OG UNDIRSKRIFT
Myndin er prentuð í einungis 25 eintökum +3AP. Allar stærðir meðtaldar.
Prentað er þegar pöntun liggur fyrir og hver og ein mynd númeruð og undirrituð af höfundi. Einnig fylgir texti um söguna bakvið myndina frá höfundi.
STÆRÐIR
80 X 120 cm strigaprent.
INNRÖMMUN
- Myndin er afhent í 4 sm þykkum blindramma. Blindramminn er því mjög sterkur og vandaður. Þykktin lætur myndina standa frá veggnum.
- Ef þess er óskað er hægt að panta sérstaklega flotramma utan um blindrammann í hvítu, svörtu eða viðarlituðu.
PRENTUN OG HRÁEFNI
- Við notum einungis hágæða hráefni og vöndum allan frágang.
- Myndin er prentuð á besta fáanlega hráefni fyrir striga og lökkuð með Hahnemuhle lakki sem tryggir hámarks endingu.
- Prentað er á hágæða prentara og einungis notað orginal Archival Blek fyrir hámarks gæði og endingu.
AFHENDINGARTÍMI
Að jafnaði er afhendingartími fjórir til 8 virkir dagar frá pöntun.
SENDINGARKOSTNAÐUR
Sendingarkostnaður ræðst af stærð og þyngd og kemur fram í körfunni þegar gengið er frá pöntun.