Refabræður #1

Refabræður #1

Verð
29.000 kr
Útsöluverð
29.000 kr
Verð
Uppselt
Einingarverð
translation missing: is.general.accessibility.unit_price_separator 

Það er sjaldgæft að rekast á hvíta yrðlinga. Mikill meirihluti refa á Íslandi er mórauður. Þessir refabræður kúrðu saman og annar hnoðaðist ofan á hinum eins og hann væri að reyna að fá hann til að leika við sig. Nagaði eyrað á honum og ýtti stöðugt við honum. Úr varð skemmtileg sería sem sýnir samheldni þessara bræðra sem máttu vart af hvor öðrum sjá.

UPPLAG OG UNDIRSKRIFT

Myndin er prentuð í einungis 35 eintökum 30 x 30 +2AP.

Myndin er prentuð í einungis 25 eintökum 20 x 20 +2AP.

Prentað er þegar pöntun liggur fyrir og hver og ein mynd númeruð og undirrituð af höfundi. Einnig fylgir texti um söguna bakvið myndina frá höfundi.

INNRÖMMUN EÐA KARTON

Hægt er að velja í pöntun um að fá myndina afhenta í vönduðu kartoni eða innrammaða í álramma með glampalausu gleri.

GLAMPALAUST GLER
Við notum eingöngu glampalaust gler í alla innrömmun. Það er ögn dýrara en gæðamunurinn er mikill. Það er ekki aftur snúið þegar búið er að kynnast glampalausu gleri.

STÆRÐIR

  • 30 x 30 cm ljósmynd.
  • Passar í 40 x 40 cm ramma.
  • Ef óskað er eftir öðrum stærðum er sjálfsagt að hafa samband.

PAPPÍR OG PRENTUN

  • Við notum einungis hágæða hráefni og vöndum allan frágang.
  • Myndin er uppsett í hágæða 2,8 mm þykku sýrufríu kartoni sem passar í ramma sem er 10 cm stærri en myndin á hverja hlið. Alvöru karton.
  • Prentað er á Canon ProGraf PRO-1000 prentara og einungis notað orginal Archival Blek fyrir hámarks gæði og endingu.
  • Við prentum helst á 285 g hágæða Fine Art Portrait Rag eða 310 g Museum Heritage Fine Art pappír.
  • Pappírinn er sýrufrír sem tryggir hámarks-endingu til áratuga.

AFHENDINGARTÍMI

Að jafnaði er afhendingartími fjórir virkir dagar.