
Þessi mynd var tekin nálægt kríuvarpinu við Jökulsárlón. Krían hafði borið nokkur síli í ungann sem gargaði þegar hún nálgaðist. Sílið var ennþá lifandi og starði stórum augum á argandi ungann. Unginn sem var orðinn stálpaður átti í fullu fangi við að koma sílinu niður.
UPPLAG OG UNDIRSKRIFT
Myndin er prentuð í einungis 35 eintökum +2AP. Allar stærðir meðtaldar.
Prentað er þegar pöntun liggur fyrir og hver og ein mynd númeruð og undirrituð af höfundi.
INNRÖMMUN EÐA KARTON
Hægt er að velja í pöntun um að fá myndina afhenta í vönduðu kartoni eða innrammaða í álramma með glampalausu gleri.
GLAMPALAUST GLER
Við notum eingöngu glampalaust gler í alla innrömmun. Það er ögn dýrara en gæðamunurinn er mikill. Það er ekki aftur snúið þegar búið er að kynnast glampalausu gleri.
STÆRÐIR
- 30 x 30 cm ljósmynd í vönduðu 40 x 40 kartoni.
- Passar í 40 x 40 ramma.
- Ef óskað er eftir öðrum stærðum er sjálfsagt að hafa samband.
PAPPÍR OG PRENTUN
- Við notum einungis hágæða hráefni og vöndum allan frágang.
- Ljósmyndin er uppsett í hágæða 2,8 mm þykku sýrufríu kartoni sem passar í ramma sem er 10 cm stærri en myndin á hverja hlið. Alvöru karton.
- Prentað er á Canon ProGraf PRO-1000 prentara og einungis notað orginal Archival Blek fyrir hámarks gæði og endingu.
- Við prentum helst á 285 g hágæða Fine Art Portrait Rag eða 310 g Museum Heritage Fine Art pappír.
- Pappírinn er sýrufrír sem lengir líftímann án þess að hann gulni.
AFHENDINGARTÍMI
Að jafnaði er afhendingartími fjórir til átta virkir dagar.